Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 08. desember 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Bruyne við Hazard: Þín verður saknað

Eden Hazard lagði landsliðsskóna á hilluna í gær eftir vonbrigðarmót á HM í Katar.


Undanfarin ár hafa verið mjög spennandi fyrir Belgíu og margir veðjað á það að liðið myndi næla í stóra titla en það hefur ekki tekist.

Eden Hazard hefði átt að vera einn af lykilmönnunum á þeirri vegferð en hann hefur ekki náð sér á strik undanfarin ár en hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2019 og hafa árin þar einkennst af meiðslum.

De Bruyne sendi honum kveðju á Twitter í gær.

„Þvílíkt ferðalag sem þetta hefur verið, til hamingju fyrirliði. Þín verður saknað," skrifaði De Bruyne.


Athugasemdir