Brasilía þykir ansi líklegt til afreka á HM í Katar en liðið mætir Króatíu á morgun í 8 liða úrslitum.
Vinicius Junior hefur byrjað alla leikina nema gegn Kamerún þar sem Tite stillti upp varaliðinu en Vinicius sem skoraði sitt fyrsta mark á mótinu í 4-1 sigri á Suður Kóreu í 16 liða úrslitum sat fyrir svörum á fréttamanna fundi í gær.
Á miðjum fundi birtist allt í einu köttur upp á borðinu beint fyrir framan Vinicius en ónefndur maður sem sat við hlið Vinicius greip í köttinn og henti honum niður á gólf.
Það virtist ekki fara vel í marga viðstadda en eftir nokkra stund skelltu menn uppúr þar á meðal Vinicius.
A cat joined Vinicius' Brazil press conference today! ????????pic.twitter.com/K3C8tTEvUi
— EuroFoot (@eurofootcom) December 7, 2022
Athugasemdir