fim 08. desember 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þreyttur á spurningum um Mbappe - „Það eru fleiri góðir leikmenn"
Mynd: Getty Images

England mætir Frakklandi í 8-liða úrslitum á HM í Katar á laugardaginn.


Kyle Walker bakvörður Englands mun að öllum líkindum byrja leikinn og mun berjast við Kylian Mbappe einn besta sóknarmann heims í dag.

Hann var spurður út í þá baráttu.

„Þessi leikur er ekki England á móti Mbappe. Þetta er England á móti Frakklandi. Jæja, hann er vopn í vopnabúrinu sem er mjög gott en það eru aðrir sem eru mjög góðir leikmenn og við megum ekki vanmeta þá. Þeir hafa unnið risatitla og bikarkeppnir," sagði Walker.

„Hann er frábær leikmaður, við vitum það, þess vegna er bara spurt um hann en við skulum ekki gleyma Giroud sem skorar endalust fyrir Frakkland og í úrvalsdeildinni. Dembele, fyrir mér, er alveg jafn góður á hinum kanntinum. Svo er Griezmann og svona. Þessir leikmenn geta skapað vandræði. Mbappe er frábær en fyrir mér á ekki bara að spurja um hann."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner