Manchester United er þessa stundina í Dúbaí í æfingaferð og undirbýr sig um lið fyrir komandi leiki í ensku úrvalsdeildinni en Paul Pogba sýndi snilli sína í viðtali við heimasíðu félagsins í dag.
Pogba hefur verið besti maður United frá því Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu af Jose Mourinho og virðist honum líða afar vel á vellinum.
Hann var í viðtali við heimasíðu Manchester United í dag er það kom langur bolti af æfingasvæðinu og í átt að honum.
Pogba sat í stól og tók á móti boltanum að hætti Dimitar Berbatov, eitursvalur og hélt áfram með viðtalið án þess að blikka augunum.
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.
Just another day at the office for @PaulPogba 😎 #MUFC pic.twitter.com/ZxkZIVAJff
— Manchester United (@ManUtd) January 9, 2019
Athugasemdir