Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 09. janúar 2019 19:21
Brynjar Ingi Erluson
West Ham hafnaði 35 milljón punda tilboði í Arnautovic
Marko Arnautovic er eftirsóttur
Marko Arnautovic er eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hafnaði rétt í þessu 35 milljón punda tilboði í austurríska leikmanninn Marko Arnautovic en tilboðið kom frá ónefndu félagi í Kína. Þetta kemur fram á Sky Sports.

Aurnatovic, sem er 29 ára gamall, hefur verið frábær með West Ham frá því hann kom frá Stoke en hann er með 8 mörk í 17 leikjum á þessu tímabili.

Sky Sports greindi frá því í kvöld að ónefnt kínverskt félag hafi boðið 35 milljón punda í leikmanninn en að West Ham hafi hafnað því um leið og ætli sér ekki að selja leikmanninn.

Arnautovic var keyptur á 20 milljónir punda árið 2017 og er með samning til 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner