Þrír leikir eru á dagskrá í Serie A deildinni á Ítalíu í dag.
Fyrsti leikur dagsins er viðureign Benevento og Atalanta. Benevento er um miðja deild á meðan Atalanta er að berjast um Meistaradeildarsæti og því gæti þetta orðið jöfn viðureign.
Klukkan 17 mæta Andri Fannar og félagar í Bologna liði Genoa á útivelli og kvöldleikurinn er viðureign AC Milan og Torino.
Milan, sem tapaði sínum fyrsta deildarleik á leiktíðinni í vikunni, er enn á toppi deildarinnar. Torino hefur verið í veseni og situr í 17. sæti deildarinnar, einungis markatölu frá fallsæti.
Ítalía: Sería A
14:00 Benevento - Atalanta
17:00 Genoa - Bologna
19:45 Milan - Torino
Athugasemdir