Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem mætir MK Dons í þriðju umferð FA-bikarins, elstu og virtustu bikarkeppni í heimi, í dag. Leikurinn hefst klukkan 15:00.
Jóhann Berg, sem er þrítugur að aldri, hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli á tímabilinu. Hann hefur aðeins spilað í fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Síðasti leikur hans með Burnley var 23. nóvember þegar hann byrjaði í 1-0 sigri á Crystal Palace.
Það er gott að sjá íslenska kantmanninn aftur í byrjunarliði Burnley en hér að neðan má sjá byrjunarliðið í heild sinni.
Það verður nóg um að fara í FA-bikarnum í allan dag. Með því að smella hérna má skoða alla leiki dagsins.
LINE-UP | Here is how the Clarets line-up against MK Dons this afternoon. ⬇️
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) January 9, 2021
Jack Cork makes his first appearance, after a lengthy spell on the side-lines, while JBG returns to the squad. 👊
Will Norris makes his Burnley debut in-between the sticks. #EmiratesFACup | @eToro 🏆
Athugasemdir