Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 09. janúar 2021 21:35
Aksentije Milisic
PSV reynir að fá Alderweireld næsta sumar
Mynd: Getty Images
PSV hefur sett sig í samband við umboðsmann Toby Alderweireld, varnarmanns Tottenham.

PSV hefur mikinn áhuga á að fá Alderweireld til sín og telur klúbburinn sig hafa mikið not fyrir þennan reynslumikla miðvörð.

Alderweireld hefur spilað fyrir erkifjendurnar í Ajax og það gæti komið í veg fyrir það að þessi skipti gangi í gegn.

Alderweireld gekk til liðs við Ajax á unglingsárum og spilaði síðan með aðalliðinu á árunum 2008-2013.

Þessi 31 árs gamli leikmaður er ennþá mikilvægur hlekkur í liði Jose Mourinho hjá Tottenham og því ljóst að um ansi gott tilboð þarf að ræða frá PSV svo Tottenham selji leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner