Leicester City átti ekki í neinum vandræðum með Stoke City í dag í þriðju umferð FA bikarsins.
Gestirnir í Leicester unnu öruggan 4-0 útisigur á Stoke sem leikur í Championship deildinni.
Það var bakvörðurinn James Justin sem braut ísinn eftir 34. mínútna leik og það gerði hann á glæsilegan hátt. Gestirnir skoruðu síðan þrjú mörk í síðari hálfleiknum.
Justin fékk boltann á vinstri vængnum, lék inn á völlin og gerði sér svo lítið fyrir og þrumaði boltanum upp í samskeytin fjær, óverjandi fyrir markvörð gestanna.
Þetta snyrtilega mark má sjá hérna.
Athugasemdir