Framherji Stoke City, Tom Ince, er undir smásjá hjá Wolsburg, Schalke og Lille.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur spilað sjö leiki fyrir Stoke á tímabilinu en Stoke vill losna við leikmanninn og launapakkann sem honum fylgir.
Stoke fékk Rabbi Matondo frá Schalke og því getur liðið selt Ince eða sent hann á lán. Hann er með um 50 þúsund pund á viku hjá Stoke City.
Ince kom til Stoke árið 2018 og hefur hann spilað 88 leiki, skorað níu mörk og lagt upp ellefu. Samningur hans við félagið rennur út árið 2022.
Athugasemdir