Adam Ingi Benediktsson varð sænskur meistari með u19 ára liði Gautaborgar í desember.
Hann spilaði einnig síðustu tvo leikina fyrir aðallið félagsins en hann er aðeins 19 ára gamall markvörður.
Adam fékk enn ein verðlaunin á dögunum þegar hann var valinn besti markvörður yngri flokka í Svíþjóð.
Adam gekk til liðs við Gautaborg frá HK árið 2019 en hann skrifaði undir sinn fyrsta fyrsta atvinnumannasamning í nóvember síðastliðinn.
Sjá einnig:
Adam Ingi verulega glaður: Ég lifi í draumi
Þjálfari Gautaborgar um Adam: Leikmaður sem við höfum trú á
Adam Ingi og Hjálmar sænskir meistarar með Gautaborg
Athugasemdir