Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 09. janúar 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Böddi Löpp með toppstykkið í lagi - „Grillaður og skemmtilegur"
Böðvar Böðvarsson
Böðvar Böðvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Alex Þór Hauksson leikmaður Öster í Svíþjóð var til viðtals hjá Sæbirni Steinke á Fótbolta.net á dögunum.

Böðvar Böðvarsson, Böddi Löpp eins og hanner oft kallaður, leikur með Helsingborg. Það er nokkuð stutt á milli Öster og Helsingborg en Alex og Böddi eru orðnir miklir félagar.

„Við erum í eins og hálfs tíma fjarlægð. Við spiluðum síðan einhvern æfingaleik rétt fyrir mót og þá komum við okkur saman og vorum til í að hittast ef tækifæri var fyrir því. Við náðum að hittast nokkrum sinnum yfir sumarið. Hann er frábær karakter, skemmtilegur og góður vinur. Ótrúlega gott að hafa hann í grendinni."

Böðvar virðist mjög skrautlegur karakter fyrir þá sem þekkja hann lítið sem ekkert. Er það rétt metið?

„Hann er með toppstykkið í lagi en jújú, hann er grillaður og skemmtilegur karakter. Maður hlær mikið í kringum hann og allt það, maður hefur ekkert nema góða hluti um hann að segja."
Græddi á því að hafa verið pirraður og fúll - „Varð sætara fyrir vikið"
Athugasemdir
banner
banner
banner