Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 09. janúar 2022 13:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðin í bikarnum: Dixon-Bonner og Woltman byrja hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Fabio Silva byrjar hjá Wolves
Fabio Silva byrjar hjá Wolves
Mynd: Getty Images
Klukkan 14:00 sjö leikir í 3. umferð enska bikarsins. Einn leikur er í gangi og Luton leiðir 1-0 gegn Harrogate þegar þetta er skrifað. Sex úrvalsdeildarlið eru í eldlínunni klukkan 14:00 og tvö þeirra mætast innbyrðis á Ólympíuleikvanginum í London, West Ham fær Leeds í heimsókn.

Liverpool mætir Shrewsbury á Anfield og eru margar breytingar á liði heimamanna. Það má líta á það þannig að Klopp stillir upp þremur eða fjórum leikmönnum úr sínu sterkasta liði. Virgil van Dijk, Andy Robertson og Fabinho byrja allir og þá eru þeir Curtis Jones og Ibrahima Konate einnig í liðinu. Roberto Firmino er á bekknum. Max Woltman og Elijah Dixon-Bonner byrja sína fyrstu leiki fyrir aðallið Liverpool.

Á varamannabekk Tottenham gegn Morecambe eru t.d. Harry Kane og Lucas Moura. Teemu Pukki og Max Aarons eru á bekk Norwich gegn Charlton. Joao Moutinho og Raul Jimenez eru á bekk Wolves gegn Sheffield United og Raphinha er á bekknum hjá Leeds gegn West Ham. Patrick Bamford er ekki klár í slaginn.

Norwich gegn Charlton: Krul, Byram, Hanley, Kabak, Sorensen, Dowell, Giannoulis, Lees Melou, McLean, Sargent og Tzolis.

Liverpool gegn Shrewsbury: Kelleher, Bradley, Konate, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Morton, Dixon-Bonner, Gordon, Jones, Woltman.
Varamenn: Adrian, Firmino, Minamino, Tsimikas, Matip, Mabaya, Norris, Balagizi, Frauendorf.

Tottenham gegn Morecambe: Gollini, Doherty, Tanganga, Rodon, Davies, Sessegnon, Winks, Lo Celso, Dele Alli, Ndombele og Bryan.

Wolves gegn Sheffield United: Ruddy, Semedo, Kilman, Coady, Marcal, Ait-Nouri, Dendoncker, Neves, Traore, Silva, Podence.


West Ham: Areola, Fredericks, Dawson, Diop, Johnson, Rice, Souce, Bowen, Lanzini, Vlasic, Antonio.

Leeds: Meslier, Ayling, Llorente, Huelde, Firpo, Koch, Bate, James, Klich, Harrison, Greenwood.



ENGLAND: FA Cup
14:00 Wolves - Sheffield Utd
14:00 Charlton Athletic - Norwich
14:00 Stoke City - Leyton Orient
14:00 Liverpool - Shrewsbury
14:00 Cardiff City - Preston NE
14:00 Tottenham - Morecambe
14:00 West Ham - Leeds
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner