Nott. Forest 1 - 0 Arsenal
1-0 Lewis Grabban ('83 )
1-0 Lewis Grabban ('83 )
Nottingham Forest er komið áfram í fjórðu umferð enska bikarsins eftir 1-0 sigur á Arsenal á City Ground-vellinum. Lewis Grabban ákvað að bregða sér í hlutverk hetjunnar með því að skora sigurmarkið á 83. mínútu.
Fyrri hálfleikurinn var fremur rólegur og einu færi Arsenal komu fyrir utan teiginn. Forest reyndi að nýta sér skyndisóknirnar en þær runnu út í sandinn og var því markalaust þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.
Það lifnaði aðeins yfir leiknum í byrjun síðari er Bernd Leno þurfti að hafa sig allan í að verja skot frá Philip Zinckernagel. Bæði lið áttu nokkur hálffæri áður en Forest tók forystuna á 83. mínútu.
Arsenal tapaði boltanum á miðsvæðinu, boltinn barst út til hægri á Ryan Yates, sem átti fallega fyrirgjöf sem datt beint fyrir Lewis Grabban og var eftirleikurinn auðveldur.
Gestunum tókst ekki að ná í jöfnunarmarkið og var það markið hjá Grabban sem skildi liðin að. Nottingham Forest er komið áfram og mætir bikarmeisturum Leicester í næstu umferð.
Athugasemdir