Einn leikur fer fram í Kjarnafæði mótinu í dag.
Þór og Dalvík/Reynir mætast í Boganum á Akureyri í hádeginu. Þetta er annar leikur liðana í mótinu en Þór valtaði yfir KA2 7-0 í sínum fyrsta leik á meðan Dalvík/Reynir tapaði gegn KF 2-0.
Liðin leika í riðli 2 af tveimur en efstu lið hvors riðils leika til úrslita. Annað sæti hvors riðils leikur um 3. sæti
Þór spilar í næst efstu deild í sumar en Dalvík/Reynir spilar í þriðju deild.
sunnudagur 9. janúar
Kjarnafæðismótið - A-deild, riðill 2
12:00 Þór-Dalvík/Reynir (Boginn)
Athugasemdir