Markvörður Chelsea og Senegal, Edouard Mendy, greindist í dag með kórónaveiruna.
Hann mun því missa af fyrsta leik Senegal í Afríkumótinu en liðið mætir Simbabve á morgun.
Hann mun því missa af fyrsta leik Senegal í Afríkumótinu en liðið mætir Simbabve á morgun.
Mendy hefur slegið í gegn frá komu sinni til Chelsea og er lykilmaður í landsliði Senegal. Alfred Gomis, markvörður Rennes, mun líklega verja mark Senegal á morgun.
Önnur þekkt nöfn í senegalska hópnum eru Kalidou Koulibaly, Idrissa Gueye, Cheikhou Kouyaté, Sadio Mané og Ismaïla Sarr.
Athugasemdir