Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 09. janúar 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjálfari Augnabliks spilaði sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik
Hrannar í leiknum í gær
Hrannar í leiknum í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrannar Bogi Jónsson er þjálfari Augnabliks en hann var í leikmannahópi Breiðabliks sem lagði Keflavík í gær 5-2 í Fótbolta.net mótinu.

Hann er 29 ára gamall en hann kom inná sem varamaður í hálfleik. Þá spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik á ferlinum.

Hann á að baki leiki með Leikni F., Reyni S., Erninum og Augnablik þar sem hann hefur verið frá 2017.

Hann tók við þjálfun liðsins fyrir áramót ásamt Eiríki Raphael Elvy. Liðið leikur í 3. deild.
Athugasemdir
banner
banner