Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 09. febrúar 2019 22:00
Arnar Helgi Magnússon
„Besti leikur Keita í treyju Liverpool"
Mynd: Getty Images
Andrew Robertson, leikmaður Liverpool, hrósar liðsfélaga sínum í hástert eftir frammistöðu sína gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Robertson segir að Keita hafi átt sinn allra besta dag í treyju Liverpool.

„Keita var magnaður í leiknum, hann var á allt öðru "lelveli". Það hefur tekið tíma fyrir hann að komast inn í þetta en í dag var hann stórkostlegur. Hans besti leikur í treyju Liverpool."

Keita hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið og hefur fengið talsverða gagnrýni á sig frá stuðningsmönnum Liverpool.

„Hann getur tekið þessa frammistöðu með sér og byggt upp sjálfstraust og ég er viss um að hann mun gera það."

„Wijnaldum var ekkert síðri en Keita. Hann hefur átt frábært tímabil með okkur. Gríðarlega vinnusamur og markið hans í dag var frábært."
Athugasemdir
banner
banner