Edinson Cavani skoraði eina mark leiksins þegar PSG tók á móti Bordeaux í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
Markið kom úr vítaspyrnu á 42. mínútu leiksins en það var nánast það síðasta sem að Cavani gerð í leiknum vegna þess að hann var tekinn útaf í hálfleik vegna meiðsla.
Kylian Mbappe kom inná í stað Cavani en hann byrjaði á varamannabekknum í dag, væntanlega verið að hvíla Frakkann fyrir leikinn gegn Manchester United á þriðjudag.
Franskir fjölmiðlar halda því fram að Cavani hafi fundið til í lærinu.
Ljóst er að brasilíski töframaðurinn Neymar mun ekki spila með PSG í leikjunum tveimur gegn United og það yrði ansi mikil blóðtaka fyrir liðið ef að Cavani tæki ekki heldur þátt.
Edinson Cavani has come off with an injury for PSG today. Four days to recover before Manchester United. 🤕 pic.twitter.com/UbI1Lv0vy7
— Football Tweet (@Football__Tweet) February 9, 2019
Athugasemdir