lau 09. febrúar 2019 17:47
Magnús Már Einarsson
Þórddur og Guðjón nýir í varastjórn KSÍ
Þóroddur Hjaltalín.
Þóroddur Hjaltalín.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrrum dómarinn Þóroddur Hjaltalín var kjörinn í varastjórn KSÍ á ársþingi sambandsins í dag.

Guðjón Bjarni Hálfdánarson, þjálfari Árborgar í 4. deildinni, var einnig kjörinn nýr inn í varastjórnina.

Þá var Jóhann Torfason endurkjörinn.

Auk þessara aðila bauð Hilmar Þór Norðfjörð sig fram í varastjórn að þessu sinni en hann náði ekki kjöri.

Guðjón og Þóroddur koma inn í varastjórnina fyrir Kristin Jakobsson og Ingvar Guðjónsson sem ákváðu að bjóða sig ekki fram.

Atkvæðafjöldi frambjóðenda
Þóroddur Hjaltalín 118
Guðjón Bjarni Hálfdánarson 108
Jóhann Torfason 103
Hilmar Þór Norðfjörð 31
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner