Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. febrúar 2020 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir semur við ungan leikmann
Mynd: Fjölnir
Fjölnir tilkynnti í gær að félagið hafi gengið frá þriggja ára samningi við Hilmi Rafn Mikaelsson (f. 2004).

Hilmir Rafn sem skipti yfir í Fjölni fyrir þremur árum frá Kormáki á Hvammstanga hefur verið í U-16 ára landsliðs úrtökum að undanförnu.

Hann er sóknarmaður og hefur skorað ófá mörkin eftir að hann kom í Grafarvoginn.

„Fjölnir bindur miklar vonir við þennan öfluga sóknarmann og á hann vonandi eftir að spila stórt hlutverk í meistaraflokki félagsins á næstu árum, segir í tilkynningu félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner