Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 09. febrúar 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Grealish opinn fyrir því að fara til Man Utd
Jack Grealish í leik með Aston Villa
Jack Grealish í leik með Aston Villa
Mynd: Getty Images
Enski sóknartengiliðurinn Jack Grealish er opinn fyrir því að fara til Manchester United í sumar en það er Goal.com sem greinir frá þessu.

Grealish hefur verið í lykilhlutverki í liði Aston Villa síðustu ár en hann hefur blómstrað hjá nýliðunum á þessari leiktíð.

Hann hefur verið orðaður við stærstu klúbba Englands en hann ákvað að vera áfram út þessa leiktíð til að hjálpa Villa að halda sæti sínu í deildinni.

Samkvæmt Goal.com er Grealish farinn að skoða hús í nágrenni við Manchester en það er fastlega gert ráð fyrir því að hann yfirgefi Villa í sumar.

Paul Pogba gæti farið til Real Madrid eða Juventus í sumar fyrir háa fjárhæð og þá mun Jesse Lingard væntanlega yfirgefa United og vill þá Ole Gunnar Solskjær styrkja miðsvæðið með að fá Grealish inn en hann er nú kominn efst á listann hjá enska félaginu.

Grealish hefur skorað 7 mörk og lagt upp 5 í deildinni til þessa en Villa er í 17. sæti með 25 stig, stigi fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner