Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. febrúar 2020 18:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Gummi Tóta: Get ekki stjórnað því hvað öðrum finnst
Gummi Tóta hefur gefið út vinsæla tónlist.
Gummi Tóta hefur gefið út vinsæla tónlist.
Mynd: Youtube
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Þórarinsson segist hafa skynjað það að margir haldi að hann sé ekki af heilum hug í fótboltanum þar sem hann er einnig tónlistarmaður.

Hann segist skilja umræðuna en veit betur sjálfur enda væri hann ekki á þessum stað ef hann væri ekki að leggja sig 100% fram í boltanum.

„Ég veit hvað ég legg mikið á mig fótboltalega og að ég legg mig allan fram í fótboltanum. Það er alveg nóg fyrir mig. Ef öðrum finnst eitthvað annað þá get ég ekkert stjórnað því," segir Guðmundur sem nýlega samdi við New York City.

Hann var í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977.

„Ég tók nokkur ár þar sem ég ætlaði ekki að gera neina tónlist og ætlaði bara að vera alvarlegur fótboltamaður. Það gekk ekkert betur hjá mér í fótboltanum. Svo fór ég að gera tónlist því mér finnst ótrúlega gaman að gefa af mér og skemmta. Þá fór allt í einu að ganga miklu betur í fótboltanum líka."

Hann segist opinn fyrir því að nýta tíma sinn í Bandaríkjunum líka í að gera eitthvað í tónlistinni.

„Ég er fyrst og fremst að fara þarna til að leggja mig virkilega fram í fótboltanum en það væri klárlega gaman að prófa eitthvað í tónlistinni. Það er hrikalega gaman að standa uppi á sviði og syngja. Ég mun pottþétt reyna að fara í stúdíó, þetta er risaborg og mikið af hæfileikaríku fólki," segir Guðmundur.

„Bandaríkjamenn fagna því ekkert smá mikið að ég sé að gera tónlist, líka innan félagsins. Ég hef fundið fyrir því að fólk efist um að ég sé að leggja mig allan í fótboltann, haldi að ég sé með hugann í tónlistinni. Ég hef ekkert verið að túra um Svíþjóð eða Bandaríkin. Ég hef bara verið heima hjá mér með gítarinn, ég gæti alveg eins verið að spila Fortnite. Mér líður bara miklu betur að vera með gítarinn."
Gummi Tóta og leiðin til New York
Athugasemdir
banner
banner