Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 09. febrúar 2020 13:30
Aksentije Milisic
Ítalía: Boga hetja Sassuolo gegn SPAL
Boga í leik með Chelsea á sínum tíma.
Boga í leik með Chelsea á sínum tíma.
Mynd: Getty Images
Spal 1 - 2 Sassuolo
1-0 Kevin Bonifazi ('23 )
1-1 Francesco Caputo ('65 , víti)
1-2 Jeremie Boga ('90 )

Fyrsta leik dagsins í ítölsku Seríu A deildinni er lokið. Þar áttust við SPAL og Sassuolo. Fyrir leikinn var SPAL í neðsta sæti deildarinnar en Sassuolo í því þrettánda.

Það var Kevin Bonifazi sem kom heimamönnum í forystu á 23 mínútu leiksins og þannig stóðu leikar þegar flautað var til hálfleiks.

Sassuolo fékk síðan dæmda vítaspyrnu á 65. mínútu og steig Francesco Caputo á punktinn og skoraði örugglega. Það var síðan í uppbótartíma sem Jeremie Boga tryggði Sassuolo góðan sigur.

Það eru þrír leikir að hefjast kl.14 í deildinni en kl.17 heimsækir síðan Lazio Parma en með sigri getur Lazio komist einungis einu stigi frá toppliði Juventus sem tapaði í gærkvöldi.

Í kvöld er svo stórleikur í Mílanó borg þar sem Inter og AC Milan mætast. Sigri Inter leikinn er liðið orðið jafnt Juventus að stigum á toppi deildarinnar og því gífurlega mikilvægir leiki framundan í dag fyrir Inter og Lazio. Sigri bæði lið sína leiki er baráttan um sigur í deildinni orðin svakaleg.
Athugasemdir
banner
banner