Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. febrúar 2020 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Öflugur útisigur Lazio á Parma
Felipe Caicedo fagnar marki sínu í kvöld
Felipe Caicedo fagnar marki sínu í kvöld
Mynd: Getty Images
Parma 0 - 1 Lazio
0-1 Felipe Caicedo ('41 )

Lazio vann áttunda útisigur sinn í ítölsku deildinni á tímabilinu er liðið vann Parma 1-0.

Felipe Caicedo gerði eina mark leiksins á 41. mínútu leiksins en það kom fyrirgjöf þá inn í teiginn. Boltinn fór af varnarmönnum Parma áður en hann datt fyrir Caicedo sem átti ekki í vandræðum með að skora.

Lazio fer upp í 2. sætið með sigrinum og er liðið nú með 53 stig, stigi á eftir toppliði Juventus.
Athugasemdir
banner
banner