Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. febrúar 2020 15:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikael Anderson og Viðar Ari á skotskónum - Mikael með tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag fóru fram æfingaleikir og voru Íslendingar þátttakendur í þremur þeirra.

FC Midtjylland mætti Jiangsu Suning og sigraði stórt, 6-0. Mikael Neville Anderson var í byrjunarliðinu og skoraði fyrstu tvö mörk leiksins. Mikael spilaði allan leikinn hjá Midtjylland.

Þá voru Viðar Ari Jónsson og Emil Pálsson í byrjunarliði Sandefjord sem mætti Fredrikstad. Viðar Ari skoraði eina mark Sandefjord í 1-3 tapi, markið kom á 89. mínútu.

Þá tapaði CSKA Moskva á móti Zenit í æfingaleik. CSKA komst yfir 0-2 en Zenit svaraði með þremur mörkum í seinni hálfleik. Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru í byrjunarliði CSKA.


Athugasemdir
banner
banner
banner