Heimild: Íslendingavaktin
Andri Lucas Guðjohnsen er á mála hjá Real Madrid á Spáni. Andri er nýorðinn átján ára og heldur áfram að gera góða hluti með U18 ára liði Real. Í desember varð hann markahæstur á alþjóðlegu móti og í gær var hann á skotskónum.
Hann skoraði tvö marka Real í 5-0 sigri á Moratalaz í gær, Íslendingavaktin vakti athygli á þessu.
Hann skoraði tvö marka Real í 5-0 sigri á Moratalaz í gær, Íslendingavaktin vakti athygli á þessu.
U18 er í efsta sæti síns riðils með 49 stig úr nítján leikjum. Andri er markahæsti leikmaður liðsins með þrettán mörk. Mörk leiksins í gær má sjá hér að neðan.
Andri hafði áður en hann gekk í raðir Real árið 2018 leikið með Barcelona og Espanyol í Katalóníu.
Athugasemdir