Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. febrúar 2020 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Elías Már kom að þremur mörkum á 3 mínútum
Mynd: Getty Images
Á föstudaginn lagði Excelsior lið Helmond, 1-4, á útivelli í hollensku 1. deildinni, næstefstu deild.

Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Excelsior og lét heldur betur að sér kveða í liði gestanna.

Elías kom gestunum í 0-2 á 70., bætti við öðru marki á 72. mínútu og lagði upp fjórða mark gestanna á 73. mínútu. Fjörugur kafli!

Excelsior er í 7. sæti deildarinnar og hefur Elías skorað sjö mörk í vetur.

Myndband af því helsta úr leiknum má með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner