Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. febrúar 2020 14:30
Aksentije Milisic
Ronaldo bætir met - Skorað í tíu leikjum í röð
Magnaður.
Magnaður.
Mynd: Getty Images
Portúgalski snillingurinn Cristiano Ronaldo bætti enn eitt metið á sínum ferli í gær þegar hann skoraði gegn Hellas Verona í ítölsku deildinni. Ronaldo kom gestunum í forystu en Hellas kom til baka og lagði meistaranna óvænt að velli.

Það sem var sérstakt við þetta mark hjá Ronaldo í gær er það að hann varð sá fyrsti í sögunni hjá Juventus til þess að skora í tíu leikjum í röð í Seríu A deildinni.

Ronaldo hefur verið í hörku formi á þessu ári þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára gamall. Á þessu tímabili hefur hann spilað 20 deildarleiki og gert í þeim 20 mörk og eins og áður segir, skorað í 10 síðustu deildarleikjum.

Hér að neðan má sjá markið hjá Ronaldo frá því í gær.




Athugasemdir
banner
banner