Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 09. febrúar 2020 16:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn: Real svaraði með fjórum mörkum - Diego fékk gult
Mynd: Getty Images
Einum leik var rétt í þessu að ljúka í spænsku La Liga. Real Madrid sótti Osasuna heim og var leikurinn í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.

Unai Garcia kom heimamönnum yfir með skalla eftir hornspyrnu Ruben Garcia á 14. mínútu. Topplið Real svaraði með fjórum mörkum.

Tvö þeirra komu á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik. Isco jafnaði leikinn með góðu skoti eftir að Gareth Bale hafði átt misheppnaða tilraun. Sergio Ramos kom gestunum yfir á 38. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir að Casemiro skallaði boltann þvert fyrir mark Osasuna eftir hornspyrnu.

Lucas Vazquez kom gestunum í 1-3 með marki eftir skyndisókn, Karim Benzema lagði boltann á Lucas sem skoraði. Í uppbótartíma skoraði svo Luka Jovic fjórða mark gestanna en hann hafði komið inn á sem varamaður. Fransisco Valverde kom boltanum á Jovic sem kláraði með frábæru skoti.

Í riðli fjögur í 3. efstu deild var Diego Jóhannesson í byrjunarliði Cartagena sem gerði jafntefli, 1-1, við Cadiz á útivelli. Cartagena er í efsta sæti riðilsins, Diego fékk gult spjald á 69. mínútu leiksins.

Osasuna 1 - 4 Real Madrid
1-0 Unai Garcia ('14 )
1-1 Alarcon Isco ('33 )
1-2 Sergio Ramos ('38 )
1-3 Lucas Vazquez ('84 )
1-4 Luka Jovic ('90 )

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 31 16 9 6 51 29 +22 57
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 31 3 8 20 32 60 -28 17
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner