Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 09. febrúar 2020 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Sverrir Ingi spilaði í öruggum sigri PAOK
Sverrir Ingi Ingason
Sverrir Ingi Ingason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Ingi Ingason, leikmaður PAOK í Grikklandi, lék allan leikinn með liðinu er það vann OFI Crete 4-0 í grísku úrvalsdeildinni í dag.

Íslenski landsliðsmaðurinn er fastamaður í vörn PAOK en liðið er í harðri baráttu við Olympiakos um gríska titilinn.

Hann spilaði allan leikinn og hélt hreinu í dag en þetta var 21 leikur hans í öllum keppnum og þá er hann kominn með 4 mörk og eina stoðsendingu.

PAOK er í 2. sæti grísku deildarinnar með 55 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Olympiakos.

Emil Hallfreðsson lék þá allan leikinn er Padova gerði 1-1 jafntefli við Cesena í C-deildinni á Ítalíu. Padova er í 5. sæti í sínum riðli með 44 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner