Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 09. mars 2020 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Sassuolo vann Birki og félaga nokkuð örugglega
Birkir Bjarnason er á leið heim til Íslands
Birkir Bjarnason er á leið heim til Íslands
Mynd: Getty Images
Sassuolo 3 - 0 Brescia
1-0 Francesco Caputo ('45 )
2-0 Francesco Caputo ('61 )
3-0 Jeremie Boga ('75 )

Sassuolo vann Brescia 3-0 í síðasta leik Seríu A áður en deildin fer í í frí til 3. apríl.

Francesco Caputo kom Sassuolo yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en hann bætti við öðru á 61. mínútu.

Jeremie Boga gerði þriðja mark Sassuolo á 75. mínútu og þar við sat.

Birkir Bjarnason lék allan leikinn en samkvæmt 433.is munu Birkir og Emil Hallfreðsson líklega fljúga til Íslands á morgun og fara í tveggja vikna sóttkví vegna kóróna veirunnar.

Það hefur verið lagt bann á alla íþróttaviðburði á Ítalíu til 3. apríl til að hefta útbreiðslu veirunnar.
Athugasemdir
banner
banner