Íslenski U21 árs landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson átti góðan leik í 2-1 sigri BATE Borisov á Dinamo Minsk í bikarnum í Hvíta-Rússlandi í dag en þetta var fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitum.
Willum var í byrjunarliði BATE í dag en hann átti sinn þátt í báðum mörkum liðsins.
Hann kom að fyrra markinu og fiskaði svo aukaspyrnuna sem Pavel Nyakhaychyk skoraði úr.
Síðari leikurinn er 14. mars og fer fram á heimavelli BATE Borisov áður en deildin hefst 19. mars.
Willum lék fyrsta A-landsleik sinn í janúar á síðasta ári í markalausu jafntefli gegn Eistlandi.
Athugasemdir