Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   þri 09. apríl 2019 13:26
Arnar Daði Arnarsson
Jón Þór: Lentum í vandræðum
Icelandair
Jón Þór Hauksson.
Jón Þór Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið gerði 1-1 jafntefli gegn Suður-Kóreu í seinni æfingaleik þjóðanna í Suður-Kóreu í morgun. Rakel Hönnudóttir skoraði mark Íslands í leiknum.

Á vefsíðu KSÍ er Jón Þór Hauksson í viðtali þar sem hann er spurður bæði út í leikinn í morgun og heildarframmistöðuna í þessum tveimur æfingaleikjum sem landsliðið lék gegn sterku liði Suður-Kóreu.

„Ég er gríðarlega ánægður að ná í úrslit hér og fara héðan taplausar gegn sterku liði Suður Kóreu. Ég er ánægður með úrslitin úr þessum leikjum og ég er ánægður með að það sé karakter í þessu hjá okkur í dag."

„Við lentum í vandræðum á köflum en við náðum að róa okkur niður og róa varnarleik okkar niður og ná að loka á því. Ég er ánægður með þá frammistöðu," sagði Jón Þór sem er ánægður með að hafa farið taplaus í gegnum þessa tvo æfingaleiki gegn Suður-Kóreu. Fyrri leikinn vann Ísland nokkuð sannfærandi.

„Ég er gríðarlega ánægður með að ná í úrslit í báðum þessum leikjum. Sigurinn var frábær í síðasta leik og við náðum góðu jafntefli hér í dag."

Jón Þór segir að fyrri æfingaleikurinn hafi verið betri hjá íslenska liðinu heldur en leikurinn í morgun.

„Við lentum í vandræðum, völlurinn í dag var ekki jafn góður og á laugardaginn og svo byrjaði að helli rigna þegar leið á leikinn."

Viðtalið við Jón Þór má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner