Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. apríl 2021 15:30
Magnús Már Einarsson
Arsenal að ná samningum við Balogun
Mynd: Getty Images
Arsenal er nálægt því að ná samkomulagi við framherjann Folarin Balogun um nýjan samning.

Hinn 19 ára gamli Balogun verður samningslaus í sumar og mörg félög hafa verið á höttunum á eftir honum.

Arsenal er hins vegar að ná að sannfæra Balogun um að vera áfram í herbúðum félagsins.

Balogun hefur ekki ennþá spilað með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni en hann þykir mikið efni.

Balogun skoraði tvö mörk í Evrópudeildinni fyrr á tímabilinu og búast má við að hann fái fleiri tækifæri með aðalliðinu á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner