Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 09. apríl 2021 18:25
Victor Pálsson
Góður sigur hjá Darmstadt - OB tapaði í Danmörku
Sveinn Aron fékk mínútur.
Sveinn Aron fékk mínútur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson lék með liði Darmstadt í Þýskalandi í kvöld sem spilaði við Hamburg í næst efstu deild.

Leikið var á heimavelli Hamburg en búast mátti við sigri heimaliðsins sem berst um að komast upp um deild.

Hamburg var fyrir leikinn fjórum stigum frá Bochum á toppnum og var í öðru sæti. Darmstadt sat í 12. sæti deildarinnar.

Guðlaugur Victor og félagar unnu þó virkilega sætan 2-1 útisigur þar sem okkar maður lék allan leikinn og fékk gult spjald.

Sigurinn gerir mikið fyrir Darmstadt sem var aðeins sex stigum frá fallsæti fyrir leikinn.

Í Danmörku vann Vejle á sama tíma góðan 1-0 útisigur á OB þar sem tveir Íslendingar komu við sigri hjá OB.

Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn fyrir OB en Sveinn Aron Guðjohnsen kom inná sem varamaður.

Sveinn hefur lítið fengið að spila á tímabilinu en tók þátt í 32 mínútum í kvöld.

Athugasemdir
banner
banner