Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. apríl 2021 10:04
Magnús Már Einarsson
Grealish frá í nokkrar vikur í viðbót - Ekki með gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, verður frá keppni í nokkrar vikur í viðbót vegna meiðsla.

Grealish hefur misst af síðusu sjö leikjum Aston Villa vegna meiðsla.

Grealish virtist vera að færast nær endurkomu á dögunum en nú hefur komið bakslag í meiðslin.

Dean Smith, stjóri Aston Villa, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Aston Villa mætir Liverpool á morgun og Grealish verður fjarri góðu gamni þar sem og í næstu leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner