fös 09. apríl 2021 18:50
Victor Pálsson
Óvíst hversu lengi Ödegaard verður frá - Allavega tveir leikir
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, veit ekki hversu illa meiddur Martin Ödegaard er en miðjumaðurinn missti af leik við Slavia Prag í gær.

Arsenal náði ekki í frábær úrslit í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Ödegaard er í láni hjá Arsenal frá Real Madrid og tók nýlega þátt í landsliðsverkefni Noregs og spilaði í 3-0 tapi gegn Liverpool um síðustu helgi.

Arteta segir að það sé óljóst hversu alvarleg meiðslin eru en býst við að Norðmaðurinn missi af næstu tveimur verkefnum gegn Sheffield United og svo seinni leiknum við Slavia.

„Við vitum ekkert. Hann gat ekki spilað í þessum leik og ég tel að hann missi af næstu tveimur," sagði Arteta.

„Við bara vitum það ekki ennþá."
Athugasemdir
banner
banner
banner