Adama Traore skoraði sigurmark Wolves í kvöld er liðið mætti Fulham í ensku úrvalsdeildinni.
Traore var að skora sitt fyrsta deildarmark á leiktíðinni en hann hefur alls ekki verið iðinn við kolann eftir gott síðasta tímabil.
Traore átti í raun engan rétt á að skora úr erfiðri stöðu í kvöld en markið kom á 93. mínútu.
Vængmaðurinn var í virkilega erfiðri stöðu eftir sendingu frá Fabio Silva en tókst að þruma boltanum framhjá Alphonse Areola í marki Fulham.
Markið má sjá hér.
Adama Traore goal for Wolves against Fulham in the Premier League #fulwov pic.twitter.com/nZqe7QgRfl
— Everything Sports (@CompleteSport24) April 9, 2021
Athugasemdir