Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 09. apríl 2021 19:41
Victor Pálsson
Valdimar Logi gerir fjögurra ára samning við KA
Mynd: KA
Valdimar Logi Sævarsson hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við knattspyrnudeild KA.

Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í kvöld en Valdimar er afar efnilegur leikmaður og fagnaði nýlega 15 ára afmæli sínu.

Valdimar skrifaði undir fjögurra ára samning við KA en hann varð Íslandsmeistari með 4. flokk félagsins í sumar.

Danska liðið Midtjylland hefur fylgst með leikmanninum sem fór á reynslu til Danmerkur í nóvember í fyrra.

Ungstirnið hefur komið við sögu í Lengjubikarnum í vetur í 5-0 sigri á Víkingi Ó. og 7-1 sigri á Aftureldingu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner