sun 09. júní 2019 12:40
Ívan Guðjón Baldursson
Forseti Benfica: Eina leiðin til að halda Joao Felix er að selja hann
Mynd: Getty Images
Luis Filipe Vieira, forseti portúgalska félagsins Benfica, er búinn að sætta sig við að ungstirnið Joao Felix muni skipta um félag í sumar.

Felix er eftirsóttur af helstu stórliðum Evrópu og neitar Benfica að selja hann fyrir minna en riftunarákvæðið segir til um, eða 120 milljónir evra.

Vieira telur eina möguleikann á að halda Felix vera að selja hann í sumar gegn því að fá hann lánaðan aftur út tímabilið.

„Það er Joao Felix og fjölskylda hans sem ákveða hvort hann verði áfram hérna eða ekki," sagði Vieira.

„Við erum að gera allt í okkar valdi til að halda honum hjá félaginu. Eina leiðin virðist vera að selja hann og fá hann lánaðan aftur til baka út tímabilið."
Athugasemdir
banner
banner
banner