Fyrr í dag var greint frá því að áhugi Barcelona á franska framherjanum Antoine Griezmann færi dvínandi.
Griezmann er leikmaður Atletico Madrid og segist forseti félagsins ekki vita hvert leikmaðurinn ætlaði sér í sumar. Griezmann hefur fengið veður af ummælum forsetans og er búinn að svara.
„Ég veit hvar ég mun spila á næsta tímabili. Ákvörðun hefur verið tekin og mun hún vera tilkynnt á næstunni," sagði Griezmann.
Riftunarákvæði Griezmann hljóðar upp á 200 milljónir evra en það verð mun lækka niður í 120 milljónir um mánaðarmótin.
Barcelona er líklegasti áfangastaður Griezmann.
Athugasemdir