Það eru aðeins tveir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag en hann tekur við sér með tíu leikjum á morgun.
Báðir leikirnir eru á dagskrá í 4. deild, sá fyrri er á Stykkishólmi og sá seinni á Ísafirði.
Snæfell mætir Kormáki/Hvöt í hörkuleik í B-riðli. Snæfell er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og þarf sigur til að jafna Hvíta riddarann í toppsætinu. Kormákur/Hvöt er með sex stig.
Á Ísafirði tekur Hörður á móti Létti. Heimamenn eru með þrjú stig eftir þrjár umferðir en gestirnir með sex.
4. deild B-riðill:
16:00 Snæfell - Kormákur/Hvöt (Stykkishólmsvöllur)
4. deild C-riðill:
19:00 Hörður Í. - Léttir (Olísvöllurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir