Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 09. júní 2019 10:57
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Man Utd með risatilboð í Wan-Bissaka
Mynd: Getty Images
Sky Sports heldur því fram að Manchester United sé búið að leggja fram risatilboð í bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka.

Hinn ungi Wan-Bissaka átti frábært tímabil í liði Crystal Palace og er gífurlega eftirsóttur rétt eins og liðsfélagi sinn Wilfried Zaha.

Palace vill þó ekki selja þessa leikmenn sína og krefst þess að fá 75 milljónir punda fyrir Zaha og 60 fyrir Wan-Bissaka.

Wan-Bissaka var í lykilhlutverki í liði Palace á tímabilinu og spilaði 35 af 38 leikjum liðsins í úrvalsdeildinni.

Hann á aðeins fjóra leiki að baki fyrir yngri landslið Englands og einn fyrir U20 lið Kongó.
Athugasemdir
banner
banner
banner