sun 09. júní 2019 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Veretout að hafna Arsenal fyrir Napoli
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Jordan Veretout er á leið frá Fiorentina í sumar en hann hefur verið meðal bestu leikmanna liðsins undanfarin ár.

Veretout er 26 ára gamall og var fastamaður í yngri landsliðum Frakka en hefur ekki spilað fyrir aðalliðið. Hann gekk í raðir Aston Villa sumarið 2015 en náði ekki að ryðja sér leið inn í byrjunarliðið og var að lokum seldur til Fiorentina.

Hjá Fiorentina hefur hann sprungið út og vakið athygli stórliða víða um Evrópu á sér. Ítalska félagið vill 20 milljónir evra til að selja Veretout, sem er þó búinn að ákveða næsta áfangastað.

Hann ætlar að hafna Roma, Sevilla og Arsenal til að spila Meistaradeildarfótbolta með Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner