Ólafur Guðmundsson er í stóru hlutverki hjá nýliðum Álasund í norsku Eliteserien.
Þessi 24 ára gamli varnarmaður gekk til liðs við norska félagið fyrir um einu og hálfu ári síðan frá FH og hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild.
Hann gerði sér leið upp á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddi upphafið á tímabilinu í Noregi.

„Við byrjuðum á því að tapa nokkrum leikjum en við höfum unnið okkur vel inn í þetta og gengur vel núna,“ sagði Ólafur en hann hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu. „Ég er mjög sáttur, mér finnst ég hafa spilað vel og liðinu gengið vel upp á síðkastið.“
„Það tók okkur nokkra leiki að koma okkur inn í þetta. Fáir í liðinu sem hafa spilað í efstu deild. Svo er búið að ganga vel upp á síðkastið, menn að venjast aðstæðum,“ segir Óli.
Álasund fór upp um deild á síðasta ári. Óli segir töluverðan mun á deildunum. „Það er alveg munur, miklu taktískari leikur og miklu betri fótbolti.“
Kom það þér á óvart að vera í svona stóru hlutverki eftir að hafa farið upp?
„Nei, alls ekki. Eftir síðasta tímabil var ég alltaf með í huganum að það væri mjög stutt í að ég gæti spilað stórt hlutverk í þessu liði. Það kom mér lítið á óvart að ég hafi fengið þetta tækifæri.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.