Úlfarnir eru að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Championship deildinni eftir fall úr úrvalsdeildinni. Þeir kræktu í reynsluboltann Kieran Trippier á frjálsri sölu frá Newcastle og eru nálægt því að fá annan reynslubolta, Raúl Jiménez, aftur í sínar raðir.
Jiménez er mexíkóskur framherji sem skoraði 28 mörk í 98 úrvalsdeildarleikjum á þremur árum hjá Fulham. Hann er samningslaus og getur því skipt um félag á frjálsri sölu.
Jiménez er 35 ára gamall og skoraði 57 mörk í 166 leikjum á fimm ára dvöl hjá Wolves áður en hann var keyptur til Fulham sumarið 2023.
„Okkur hefur sárlega vantað reynslumikla leiðtoga í hópinn og við þurfum nauðsynlega á svoleiðis leikmönnum að halda," sagði Rob Edwards þjálfari þegar Trippier skrifaði undir samning.
Jiménez er markahæsti leikmaður í úrvalsdeildarsögu Wolves með 40 mörk en hann hefur aldrei reynt fyrir sér í Championship deildinni.
08.06.2026 23:26
Trippier skiptir til Wolves (Staðfest)




