Uppbótartíminn, umfjöllunarþáttur um kvennaboltann, verður í beinni útsendingu á Fótbolti.net í kvöld.
Þátturinn hefst klukkan 21:15, fljótlega eftir að landsleik Íslands og Spánar lýkur.
Þátturinn hefst klukkan 21:15, fljótlega eftir að landsleik Íslands og Spánar lýkur.
Farið verður yfir landsleikina gegn Úkraínu og Spáni og framhaldið hjá landsliðinu sem er að stefna á það að komast á HM í fyrsta sinn í sögunni.
Þá verður farið yfir Bestu deildina og staðan tekin á öllum liðunum þegar sjö umferðir eru búnar af mótinu. Aldrei að vita nema það verði einhverjir skemmtilegir listar teknir fyrir í þættinum.
Einnig verður auðvitað rætt um þær risastóru fréttir að Sara Björk Gunnarsdóttir sé komin heim í Hauka. Hvernig mun Lengjudeildin líta út eftir það?
Fylgist með í beinni útsendingu!


