Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mán 09. júlí 2018 21:33
Egill Sigfússon
Helgi Sig: Engar frekari styrkingar í glugganum
Helgi laut í lægra haldi í kvöld
Helgi laut í lægra haldi í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Fylkir tapaði 2-3 fyrir Víking í Egilshöllinni í kvöld og eru í fallsæti. Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkismanna sagði liðið einfaldlega ekki hafa mætt til leiks þegar flautað var á.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  3 Víkingur R.

„Við byrjuðum ekki leikinn, við vorum bara slakir í fyrri hálfleik og við vitum af því en sýndum karakter í seinni hálfleik en holan var orðin djúp. Við getum ekki ætlast til að skora þrjú mörk í hverjum hálfleik."

Helgi gerði tvær breytingar í hálfleik og sagði þær klárlega haft jákvæð áhrif og taldi liðið alveg geta jafnað leikinn.

„Það hjálpaði til, við unnum seinni hálfleikinn 2-0 en þegar þú ert kominn 3-0 undir er þetta erfitt en við fengum þó færin til að jafna þennan leik en því miður gekk það ekki."

Helgi Valur Daníelsson fékk tvö gul spjöld og þar með rautt en Helgi kenndi Agli dómara alls ekki um tapið í kvöld.

„Dómarinn gaf honum tvö gul og ekki meira um það að segja, maður getur farið að tala um dómarann en það hefur ekkert uppá sig. Það væri mjög lélegt hjá mér að standa hér og fara að kenna dómaranum um hvernig fór í dag."

Ólafur Ingi Skúlason fær leikheimild með liðinu 15.Júlí og er byrjaður að æfa, Helgi segir að engar frekari styrkingar verði á liðinu.

„Hann er byrjaður að æfa og er frábær fengur fyrir okkur, við erum með fínan hóp, þetta er hópurinn sem við klárum þetta mót með. Það verða engar aðrar styrkingar, þetta er nógu gott lið og þeir klára þetta verkefni."
Athugasemdir
banner
banner