Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 09. júlí 2018 09:10
Magnús Már Einarsson
Henderson tæpur fyrir undanúrslitin
Gareth Southgate og Henderson taka stöðuna.
Gareth Southgate og Henderson taka stöðuna.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, leikmaður Liverpool, er tæpur fyrir leik enska landsliðsins gegn Króatíu í undanúrslitum HM á miðvikudagskvöld samkvæmt frétt Sky í dag.

Henderson er að glíma við meiðsli aftan í læri. Meiðslin eru ekki alvarleg en sjúkraþjálfarar enska landsliðsins ætla að meta stöðuna fyrir leikinn á miðvikudag.

Henderson var öflugur í sigrinum á Svíþjóð í fyrradag en hann hefur fengið lof fyrir frammistöðu sína á HM.

Gegn Kolumbíu í 16-liða úrslitunum hljóp Henderson meira en tveimur kílómetrum meira en næsti maður á vellinum.

Jamie Vardy er einnig tæpur fyrir leikinn á miðvikudag en hann meiddist gegn Kolumbíu í 16-liða úrslitunum í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner